|
Starf í deildum |
Ungmennastarf Borgarfjarðardeildar kynnir skyndihjálp
15.02.2010
Í tilefni af 1-1-2 deginum þann 11.2. unnu Rauði krossinn í Borgarfirði og Neisti sameiginlega að kynningu í verslunarhúsnæði í Borgarnesi. Þar var Neisti með til sölu öryggisvörur fyrir heimili sem snúa að eldvörnum, kynnti sigurvegara í eldvarnargetraun og var með slökkviliðsbíl til sýningar sem vakti mikla lukku meðal yngri kynslóðarinnar. Ungmennastarf Borgarfjarðardeildar Rauða krossins sá um að dreifa skyndihjálparbæklingnum ,,Ertu til þegar á reynir“ til almennings og það þótti vel við hæfi vegna þess að 1-1-2 dagurinn snýr einmitt að því að vekja almenning til umhugsunar um neyðarlínuna 1-1-2 og skyndihjálp. Á myndinni eru þær Guðrún Hildur Hauksdóttir, Erla Björk Kristjánsdóttir og Salvör Svava Gylfadóttir úr ungmennastarfinu en þær stóðu sig aldeilis vel við kynninguna.
|
|